Hæ hæ,
í gær átti ég afmæli, takk fyrir kveðjurnar, þetta varð hinn skemmtilegasti dagur, fékk fullt af gjöfum og fullt af heimsóknum, takk fyrir þetta allt kæru vinir og fjölskylda, þið eruð yndisleg.
Hjálp... við vorum að senda bílinn okkar með Eimskip til landsins og í bílnum voru hlutir sem Alex þurfti að nota úti eftir að gámurinn fór og hlutir sem hann taldi sig þurfa hér áður en gámurinn kæmist í okkar hendur. Alex fór í vikunni að sækja bílinn og viti menn, það var búið að hreinsa bílinn af þessum fínu hlutum. Vantaði keppnishjólið hans, tvær borvélar og eitthvað fleira.....
HVAÐ ER Í GANGI..... Við ætlum sko ekki að láta þetta yfir okkur ganga, það virðist vera sem að í kring um flutninga sé skipulögð glæpastarfsemi, bílar séu opnaðir af starfsmönnum Eimskip með lyklum og hlutir sem verðmætir eru teknir út! HALLOOOOO Mikil sorg og reiði ríkir á heimilinu þess vegna þessa dagana og sérstaklega hjálparleysi, vonleysi og bara ótrúlega mikil furðan. Hvernig getur svona lagað gerst. Það er ekki trygging fyrir skemmdum af völdum veðra á sjó sem maður þarf að tryggja sig gegn heldur gegn þjófnaði starfsmannanna!!! Hvaða trygging bíður upp á tryggingu við þjófnaði sem er gerður með bíllyklinum? Fáránlegt. Sem betur fer á ég góða frændur innan Eimskips sem vonandi geta kippt þessu í liðinn, bætt okkur hlutina eða já bara fundið hlutina! Kannski hefur einhver tekið hlutina í misgripum úr bílnum okkar sem var læstur í gámi á leið yfir hafið? Eða einhver tekið hlutina því þeir mundu annars hristast svo mikið og skemma bílinn á sjó en eiginlega er það í skilmálum að flytjandi taki ábyrgð á því að hlutir séu rétt pakkaðir og því ekki starfsmannanna að ganga í læstar hirslur og raða fyrir mann. Nú og svo er það næsta áfall.... Maður borgar jú flutning á bíl, en maður þarf að borga aukalega fyrir það sem er í bílnum, það sem flyst í bílnum.... hvernig stendur á því að maður þurfi að borga fyrir flutning á t.d. kassanum sem maður ætlar að senda og líka fyrir innihaldinu í kassanum, kommon!!! Er einhver að grínast í okkur..... Það liggur við að maður fari bara aftur til Þýskalands.....En sem betur fer eigum við góðfélaga sem vonandi ná að hjálpa okkur. Takk fyrir það,
Er þetta ekki efni í stórfrétt í fréttablöðum landsins????